Nemendur sem útskrifast í vor hafa verið gerðir að tilraunahópi fyrir illa ígrundaðar breytingar, segir skólamálanefnd Skólastjórafélags Íslands. Hún gagnrýnir hvernig ráðherra hefur staðið að breytingum á einkunnagjöf. Frétt í fyrstu athugasemd.
Landsnet lætur gera ytri úttekt á slysi sem varð þegar ung kona fékk rafstraum í tengivirki í lok september. Slysið er þegar til rannsóknar hjá lögreglu, HMS og Vinnueftirlitinu.
Það getur verið fjórum sinnum líklegra að neglur losni frá naglabeði hjá þeim sem nota þyngdarstjórnunarlyf en þeim sem gera það ekki.
Hundruð þúsunda mótmæla í Frakklandi í dag, flestir friðsamlega. Lögregla hefur handtekið að minnsta kosti þúsund og beitt táragasi í fjölda borga. Fjölmenn mótmæli hafa verið víða í Evrópu síðustu daga.
Formaður félags yfirlögreguþjóna segir samráð hafi skort við stjórnendur í lögreglunni um fyrirhugaða fækkun lögregluembætta. Hún telur flesta sammála um að lögreglan á Íslandi eigi að vera ein heild.










